Lemon Mini á Olís þjónustustöðvum
Það hefur fjölgað hratt í hópi þeirra þjónustustöðva Olís sem bjóða upp á Lemon sem hluta af sínu vöruvali. Lemon rekur nú þegar hefðbundna staði í Norðlingaholti og í Gullinbrú og viðtökur þar hafa verið vonum framar. Á undanförnum mánuðum hafa þjónustustöðvar Olís í Borgarnesi, á Akranesi og nú síðast á Selfossi bæst í hópinn. Á þessum staðsetningum er boðið upp á Lemon míní þar sem fjórar vinsælustu tegundirnar af djúsum og samlokum Lemon eru á boðstólnum. Á Selfossi og Akranesi er einnig hægt að fá veitingar afgreiddar í lúgu, bæði Lemon míní og Grill 66. Lemon míní er skemmtileg viðbót við Grill 66 matseðilinn og fjölgar þeim hollu valkostum sem í boði eru. Það má því segja að allir geta fengið eitthvað við sitt hæfi með viðkomu á Olís.
Gurrý Indriðadóttir markaðsstjóri Lemon:
Lemon míní er aðeins minni útgáfa af Lemon eins og nafnið gefur til kynna. Á Lemon míní er hægt að fá fjórar tegundir af samlokum og fjórar tegundir af djúsum. Um er að ræða „best of the best“ hjá Lemon. Við hjá Lemon leggjum áherslu á að mæta ólíkum þörfum viðskiptavina okkar með sælkerasamlokum og hollum djúsum. Við erum mjög spennt fyrir míní stöðunum okkar hjá Olís. Við teljum að viðskiptavinir fagni því að geta gripið með sér hollar og bragðgóðar samlokur og sólskin í glasi inn í fjölbreytt verkefni dagsins.
Jón Árni Ólafsson sviðsstjóri smásölusviðs Olís:
Við hjá Olís kappkostum að bjóða viðskiptavinum okkar upp á fjölbreytta þjónustu og veitingar á þjónustustöðvum okkar. Samhliða því að endurnýja allar þjónustustöðvar okkar erum við að opna Lemon míní veitingastaði á völdum stöðvum um land allt. Þannig geta viðskiptavinir valið um ferska safa og samlokur frá Lemon míni eða gómsæta hamborgara frá Grill 66. Við höfum fengið feikilega góðar viðtökur á nýju Lemon stöðvunum og bjóðum alla velkomna í heimsókn til okkar.